|
|||
2015-09-11 17:10:10 CEST 2015-09-11 17:10:41 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirÍslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Hver flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Tilboðum var tekið fyrir 1.060 m. kr. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 16 0212 að nafnvirði 560 m. kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 97,4849) og í flokki ISLA 16 0321 að nafnvirði 500 m. kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,8184). Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 3,2 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.940 m. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. september næstkomandi, með auðkennunum ISLA 16 0212 og ISLA 16 0321. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. Upplýsingafulltrúi - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1951402] |
|||
|