2012-03-14 17:26:00 CET

2012-03-14 17:26:02 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útgáfa á nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki í tengslum við losun gjaldeyrishafta


Í tilkynningu efnahags- og viðskiptaráðuneytisins þann 25. mars 2011 um áætlun
um losun gjaldeyrishafta kom m.a. fram að eigendur gjaldeyris muni eiga þess
kost að kaupa krónur í útboðum Seðlabankans gegn því að binda þær í
skuldabréfum sem útgefin verða af ríkissjóði Íslands. 

Lánamál ríkisins mun gefa út nýjan verðtryggðan flokk RIKS 33 0321 fyrir
gjaldeyrisútboð sem verður haldið 28 mars nk. Hinn nýi verðtryggði flokkur
verður með svipaða uppbyggingu og RIKS 30 0701. Fyrst um sinn verður ekki um
viðskiptavakt að ræða með flokkinn. Meðfylgjandi er lýsing á skilmálum
bréfsins. Kaupverð á flokknum fyrir gjaldeyrisútboðið verður tilkynnt eftir
lokun markaða kl. 16:00 þann 22. mars 2012.