|
|||
![]() |
|||
2016-06-20 18:56:21 CEST 2016-06-20 18:56:21 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirUndirritun samninga í tengslum við útgáfu íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiMánudaginn, 20. júní, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði. Frá 1. júlí 2016 hefur Landsbankinn hf. heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með Íbúðabréf". -- Aðalmiðlari hefur einn aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð, að lágmarki skv. eftirfarandi töflu og að nafnvirði, í hvern flokk Íbúðabréfa í Nasdaq OMX á Íslandi. Flokkur Nafnverð --------------------- HFF150224 70.000.000 --------------------- HFF150434 60.000.000 --------------------- HFF150644 55.000.000 --------------------- -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum. -- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 300 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Samningurinn gildir frá 1. júlí 2016 til 30. júní 2017. |
|||
|