|
|||
2012-06-14 18:45:49 CEST 2012-06-14 18:46:50 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirKaupverð á ríkisverðbréfum fyrir gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands 20. júníÞátttakendur sem fá samþykkt tilboð í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands þann 20. júní nk. gefst kostur á að selja ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. Í fréttatilkynningu Lánamála ríkisins þann 22. maí 2012 kom fram að kaupverð á ríkisverðbréfunum verði birt 14. júní 2012. Aðilar sem eiga samþykkt tilboð í gjaldeyrisútboði Seðlabankans eiga þess kost að selja Lánamálum ríkisverðbréfin sín á eftirfarandi kjörum miðað við uppgjör 22. Júní. Flokkar Verð Flatir Vextir Flokkar Verð án áf. vaxta Áv. krafa ------------------------------------------------------------------------------- RIKV 12 0716 99,760 3,61% RIKB 12 0824 99,900 4,76% ------------------------------------------------------------------------------- RIKV 12 0815 99,450 3,69% RIKB 13 0517 103,570 3,16% ------------------------------------------------------------------------------- RIKV 12 0917 99,100 3,76% ------------------------------------------------------------------------------- RIKV 12 1015 98,795 3,82% ------------------------------------------------------------------------------- RIKV 12 1115 98,450 3,89% ------------------------------------------------------------------------------- RIKV 12 1217 98,085 3,95% ------------------------------------------------------------------------------- Viðskiptavakar sem ætla að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti með framangreind ríkisverðbréf þurfa að upplýsa Lánamál ríkisins um það eigi síðar en kl. 09.00 þann 21. júní. Ríkisverðbréfin þurfa svo að berast Lánamálum fyrir klukkan 11.00 þann 22. júní. Greiðslur eiga sér stað eftir afhendingu bréfanna og eigi síðar en klukkan 16.00 sama dag. |
|||
|