2015-07-15 18:01:00 CEST

2015-07-15 18:01:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Heimildir til fjárfestinga lífeyrissjóða erlendis á þessu ári


Seðlabanki Íslands fyrirhugar að veita lífeyrissjóðum, sem starfsleyfi hafa
skv. V. eða XI. kafla laga nr. 129/1997, ásamt öðrum innlendum vörsluaðilum
séreignarlífeyrissparnaðar undanþágu frá lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál,
til fjárfestinga í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri. Samanlagt
mun heimild þessar aðila  nema kr. 10 milljörðum og kemur
fjárfestingarheimildin til með að skiptast milli þeirra með þeim hætti að
annars vegar verður horft til stærðar sem fær 70% vægi og hins vegar verði
horft til hreins innstreymis sem fær 30% vægi. Útreikningurinn byggir á
upplýsingum úr nýjustu ársreikningabók Fjármálaeftirlitsins um lífeyrissjóði,
þ.e. tölum frá árinu 2013. Mun undanþága miðast við að heimild hvers aðila
gildi til loka þessa almanaksárs. 

Gjaldeyrisinnstreymi að undanförnu og minni óvissa um þróun greiðslujafnaðar í
framhaldi af setningu laga á Alþingi sem lúta að uppgjöri búa fallinna
fjármálafyrirtækja og kynningu áforma varðandi svokallaðar aflandskrónur síðar
á yfirstandandi almanaksári skapar svigrúm til fjárfestinga lífeyrissjóða og
annarra vörsluaðila séreignarsparnaðar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum
gjaldeyri. Í slíkum fjárfestingum felst þjóðhagslegur ávinningur þar sem
lífeyrissjóðunum er gert mögulegt að bæta áhættudreifingu í eignasöfnum á sama
tíma og dregið er úr uppsafnaðri erlendri fjárfestingarþörf lífeyrissjóðanna
þegar fjármagnshöft verða leyst. Þar með er dregið úr hættu á óstöðugleika í
kjölfar losunar fjármagnshafta. 

Þeim lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignarsparnaðar sem áhuga hafa á að
sækja um undanþágu til framangreindra viðskipta er bent á að senda inn umsókn
til gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands. Eyðublað vegna umsóknar um
undanþágu má finna á eftirfarandi
vefslóð:http://www.sedlabanki.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=9087. 

Umsóknir skulu berast Seðlabankanum bréflega á eftirfarandi heimilisfang:
Seðlabanki Íslands
b.t. Gjaldeyriseftirlits
Kalkofnsvegi 1
150 Reykjavík

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.