|
|||
2017-07-18 19:14:43 CEST 2017-07-18 19:14:43 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÍslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 2.040 m.kr. Heildartilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru 1.340 m.kr. á bilinu 3,05% - 3,10%. Öll tilboð voru afþökkuð að þessu sinni. Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,708%. Heildartilboð voru 700 m.kr. á bilinu 2,708% - 2,760%. Heildarstærð flokksins verður 9.240 m.kr. eftir útgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 25. júlí næstkomandi. Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 30.840 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 95.540 m.kr. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|