|
|||
2024-05-13 17:18:00 CEST 2024-05-13 17:18:01 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki: Kaupréttaráætlun starfsfólksÍ samræmi við starfskjarastefnu Arion banka hf. er í gildi kaupréttaráætlun á grundvelli 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem samþykkt var á aðalfundi bankans árið 2020 með síðari breytingum. Kaupréttaráætlunin gildir til fimm ára frá árinu 2021 til ársins 2026 og nær til allra fastráðinna starfsmanna bankans og dótturfélaganna Varðar trygginga hf. og Stefnis hf. og er markmið áætlunarinnar að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni samstæðunnar. Tilkynnt var um framkvæmd kaupréttaráætlunarinnar og breytingar á henni þann 9. febrúar 2021, 18. febrúar 2022, 9. maí 2022, 20. febrúar 2023, 15. maí 2023 og 20. febrúar 2024. |
|||
|