|
|||
2011-04-08 13:45:13 CEST 2011-04-08 13:46:13 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 12 0824: Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.910 m.kr. að nafnverði. 9 tilboðum var tekið fyrir 2.810 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,1 (3,40% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12. apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 13. apríl 2011. |
|||
|