|
|||||||||||||||||||||||||||
2022-05-18 17:31:00 CEST 2022-05-18 17:31:00 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarTilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 23 0515 - RIKB 42 0217 - Skiptiútboð eða greiðsla með reiðufé
Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi. Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 daginn fyrir uppgjörsdag. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 22 1026. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679. |
|||||||||||||||||||||||||||
|