2011-04-01 16:49:24 CEST

2011-04-01 16:50:25 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Skipti hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Kristín Guðmundsdóttir segir starfi sínu lausu



Kristín Guðmundsdóttir, forstjóri Skipta, tilkynnti stjórn Skipta í dag að hún
segði starfi sínu lausu frá og með deginum í dag. Kristín tók við starfi
forstjóra Skipta í janúar síðastliðnum en áður var hún staðgengill forstjóra og
fjármálastjóri félagsins frá 2003. Að ósk stjórnar mun Kristín starfa áfram sem
forstjóri þangað til annað hefur verið ákveðið. 

Kristín Guðmundsdóttir: „Ég hef starfað hjá Símanum og Skiptum í átta ár. Á
þeim tíma hefur fyrirtækið tekið miklum breytingum og mjög viðburðaríkur tími
er að baki. Nú hafa Skipti skrifað undir samninga við lánveitendur og birt
ársreikning fyrir árið 2010. Ég hef nú ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum
og vil þakka samstarfsfólki mínu fyrir frábært samstarf og óska þeim og
fyrirtækinu alls hins besta.“ 

Skúli Valberg Ólafsson, stjórnarformaður Skipta: „Ég vil fyrir hönd stjórnar
þakka Kristínu fyrir frábært starf í þágu félagsins á undanförnum árum. Hún
hefur leikið lykilhlutverk við að stýra félaginu í þeim ólgusjó sem hefur
einkennt rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja undanfarin misseri. Ég óska
henni alls hins besta í þeim verkefnum sem hún tekur sér nú fyrir hendur.“