2015-12-18 18:15:39 CET

2015-12-18 18:15:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki  hf. lauk  í dag  útboði á  víxlum til  5 og 6 mánaða. Tilboðum var
tekið fyrir 1,62 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,56 ma. kr.

Seldir  voru víxlar í  flokki ISLA 16 0520 að nafnvirði 760 m.kr. á 6,50% flötum
vöxtum  (verð 97,4830) og í flokki ISLA  16 0616 að nafnvirði 860 m.kr. á 6,55%
flötum vöxtum (verð 96,9997).

Fyrir  útboðið  voru  útistandandi  víxlar  Íslandsbanka  að fjárhæð 9,5 ma. kr.
Stefnt  er að  töku víxlanna  til viðskipta  í Nasdaq  Iceland þann 29. desember
næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 3187/ 844 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[HUG#1974872]