|
|||
![]() |
|||
2015-12-09 16:30:00 CET 2015-12-09 16:30:00 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 16 0315 og RIKV 16 0615Föstudaginn 11. desember kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 16 0315 og RIKV 16 0615 sem eru með gjalddaga 15. mars og 15. júní 2016. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 15. desember 2015. Sótt verður um að RIKV 16 0615 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi miðvikudaginn 16. nóvember 2015. Nánari upplýsingar veitir Laufey B. Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9631. |
|||
|