|
|||
2016-03-03 16:58:36 CET 2016-03-03 16:58:36 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur víxlaútboðiLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 160810 og nýjum flokki, LBANK 160912. Heildartilboð í útboðinu námu 3.960 m. kr. og var tilboðum tekið í flokki LBANK 160810 að fjárhæð 540 m. kr. á 6,50% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,3118 og í flokki LBANK 160912 að fjárhæð 2.680 m. kr. á 6,58% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 96,7121. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. mars 2016. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. |
|||
|