2024-05-13 10:45:00 CEST

2024-05-13 10:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 22. mars 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 5 milljarðar króna sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023.

Í viku 19 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 761.489 eigin hluti að kaupverði alls kr. 76.586.487 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti
6.5.202409:55:1135.975100,003.597.50039.480.942
6.5.202410:10:5512.659100,001.265.90039.493.601
6.5.202410:59:41200.866101,0020.287.46651.466.955
7.5.202411:33:386.660100,00666.00051.473.615
7.5.202413:57:186.329100,00632.90051.479.944
8.5.202411:13:501.898101,00191.69851.481.842
8.5.202411:27:1312.658101,001.278.45851.494.500
8.5.202411:27:2510.334101,001.043.73451.504.834
8.5.202412:24:2812.658101,001.278.45851.517.492
8.5.202412:44:1010.000101,001.010.00051.527.492
8.5.202412:54:3585101,008.58551.527.577
8.5.202413:30:4012.658101,001.278.45851.540.235
8.5.202413:30:46189.209101,0019.110.10951.729.444
10.5.202409:56:401.23799,80123.45351.730.681
10.5.202410:37:0562.65899,806.253.26851.793.339
10.5.202410:38:27185.605100,0018.560.50051.978.944

Samtals vikan761.489
76.586.487

Fyrir framangreind viðskipti í viku 19 átti bankinn 39.444.967 eigin hluti, sem nemur 1,97% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 5.542.218 hluti, sem nemur 0,28% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 560.179.551. í umferðinni.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 25. mars síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. júní 2024.

Til viðbótar við framangreind viðskipti í viku 19 keypti bankinn í vikunni 11.772.488 eigin hluti í endurkaupum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi, sbr. tilkynning um niðurstöðu þeirra endurkaupa dags. 7. maí 2024. Frá upphafi endurkaupar í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 51.978.944 eigin hluti eða sem nemur 2,60% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.