|
|||
![]() |
|||
2016-09-07 15:56:11 CEST 2016-09-07 15:56:11 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 400 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,23%. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 920 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Óverðtryggði flokkurinn ARION CB 22 var stækkaður um 1.260 m. kr á ávöxtunarkröfunni 5,69%. Heildareftirspurn í útboðinu var 2.580 m. kr. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem teknir hafa verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 5. október næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 20.400 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 57.560 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|