2009-08-27 18:55:36 CEST

2009-08-27 18:56:37 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Ársreikningur

- Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) af reglulegri starfsemi á fyrri helmingi ársins 2009 nam 491 m.kr.


Helstu niðurstöður janúar til júní 2009

•  Hagnaður  TM af reglulegri starfsemi á fyrri helmingi ársins 2009 var 491
   m.kr. samanborið við 2.519 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra.
•  Hagnaður af vátryggingastarfsemi var 27 m.kr. fyrir skatta samanborið við 29
   m.kr. hagnað á sama tímabili 2008. 

•  Eigin iðgjöld jukust um 5% og voru 4.524 m.kr. samanborið við 4.307 m.kr. á
   sama tímabili 2008. 

•  Eigin tjónakostnaður lækkaði um 6% og var 4.185 m.kr. á fyrri helmingi ársins
   samanborið við 4.464 m.kr. á sama tímabili 2008.
•  Eigið tjónshlutfall félagsins lækkaði úr 104% í 92% á milli ára.

•  Fjárfestingatekjur félagsins voru jákvæðar sem nemur 2.194 m.kr. á fyrri
   helmingi ársins en voru neikvæðar um 499 m.kr. á sama tímabili 2008. 

•  Hagnaður af aflagðri starfsemi nam 3.021 m.kr. 

•  Heildareignir TM voru 30.699 m.kr. þann 30. júní 2009 og hafa lækkað um
   39.166 m. kr. vegna sölu á norska vátryggingafélaginu Nemi Forsikring ASA.

Eigið fé nam 8.622 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 28% þann 30. júní 2009. 

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:
„Helsta verkefni félagsins undanfarin misseri hefur verið að bæta afkomu af
vátrygginga-starfseminni. Sú vinna hefur haft þau áhrif að hægt hefur verulega
á vexti og tjónakostnaður lækkar milli ára. 

Markmið um að bæta afkomu eignatrygginga og frjálsra ökutækjatrygginga náðust
þegar á fyrri hluta ársins. Afkoma skipa-, slysa- og ábyrgðatrygginga á
tímabilinu veldur hins vegar vonbrigðum. Unnið er markvisst að úrbótum og mun
sú vinna halda áfram þar til jafnvægi hefur náðst. Árangur þeirrar vinnu ætti
að verða ljós á fyrsta fjórðungi næsta árs. 

Afkoma félagsins af fjárfestingastarfsemi skýrist að mestu af vaxtatekjum,
kröfulækkun ríkistryggðra skuldabréfa og hækkun hlutabréfa. Hagnaður af
aflagðri starfsemi skýrist af gengishagnaði við sölu á norska
vátryggingafélaginu Nemi. 

Fjárhagsleg staða TM er sterk og eignir á móti vátryggingaskuld (bótasjóður)
traustar. Geta félagsins til að standa við skuldbindingar sínar er vel umfram
það sem opinberir aðilar gera kröfur um.” 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 515 2609