|
|||
2012-03-11 18:32:52 CET 2012-03-12 11:35:46 CET REGULATED INFORMATION Eyrir Invest ehf. - FyrirtækjafréttirEyrir Invest kaupir eigin bréfEyrir Invest hefur í dag keypt eigin hlutabréf sem nema 9% af heildarúgefnu hlutafé félagins í skiptum fyrir 2,5% hlut í Marel. Viðskiptin eru á milli Eyris og Landsbankans. Skipt er á 100 milljónum hluta í Eyri á genginu 26 krónur á hlut fyrir 18,6 milljónir hluta í Marel á 140 krónur á hlut. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest:"Eyrir Invest veitir Marel afgerandi kjölfestu með þriðjungshlut í félaginu sem við hyggjumst halda til langframa. Marel er leiðandi á heimsvísu á miklum vaxtarmarkaði eftir vel heppnaðar yfirtökur. Marel hefur fjárfest vel í þróun og markaðssókn og er nú að uppskera. Við teljum að framundan sé mikill og arðsamur innri vöxtur. Fjárhagsstaða Eyris er sterk með heildareignir um 400 m evra og yfir 50% eiginfjárhlutfall. Við ætlum að einbeita okkur að núverandi kjarnafjárfestingum sem eru auk Marel, Fokker Technologies og Stork Technical Services. Jafnframt munum við styrkja Eyri sprota til nýfjárfestinga og vaxtar.“ Heildarútgefið hlutafé í Eyri Invest er um 1.108 milljónir hlutir, þar af 100 milljónir eigin hlutir. Landsbankinn á 3,5% hlut í Eyri eftir þessi viðskipti að auki á Horn fjárfestingarfélag sem er 100% í eigu Landsbankans 12,5% hlut. Stærstu hluthafar eru Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson og félög í þeirra eigu með ríflega 34% hlut í Eyrir Invest. Frekari upplýsingar veitir: Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest Sími: 525-0200 www.eyrir.is Um Eyri Eyrir Invest er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Eyrir Invest var stofnað um mitt ár 2000. |
|||
|