|
|||
2014-02-17 11:25:49 CET 2014-02-17 11:26:51 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirViðleitni Breta og Hollendinga til að auka endurheimtur vegna Icesave hafa ekki áhrif á lánshæfi Ríkissjóðs ÍslandsMatsfyrirtækið Moody´s hefur sent frá sér álit þar sem kemur fram að lögsókn yfirvalda í Bretlandi og Hollandi fyrir hönd innstæðutryggingarsjóða þeirra á hendur Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi hafi engin áhrif á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands sem er Baa3 með stöðugum horfum. Vísað er í úrskurð EFTA-dómstólsins frá árinu 2013 um að engin greiðsluskylda vegna Icesave-reikninga hvíli á íslenska ríkinu. Fréttatilkynningin í heild er í viðhengi. |
|||
|