2015-06-19 15:04:00 CEST

2015-06-19 15:05:01 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Enska Íslenska
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf.: Landsbankinn vinnur að samruna við Sparisjóð Norðurlands


Landsbankinn hf.  hefur í dag, 19. júní 2015, skrifað undir samkomulag við
Sparisjóð Norðurlands ses. um að hafinn verði undirbúningur að samruna
félaganna. Stjórn sparisjóðsins leitaði til Landsbankans þann 9. júní 2015, til
að kanna áhuga á samruna, vegna óvissu um framtíð sjóðsins og hafa viðræður
staðið frá þeim tíma. 

Samruni lýtur lögbundnu ferli sem tekur að lágmarki fjórar vikur, frá því hann
er fyrst auglýstur með formlegum hætti og er háð aðkomu bæði Fjármálaeftirlits
og Samkeppniseftirlits. 

Sameinað fyrirtæki yrði rekið undir nafni Landsbankans og við hann rynnu allar
eignir og skuldbindingar sparisjóðsins inn í Landsbankann og hann tæki við
rekstri allra útibúa sjóðsins. 

Samkvæmt því samkomulagi sem fyrir liggur munu stofnfjáreigendur í sparisjóðnum
fá greitt með hlutabréfum í Landsbankanum. Heildarendurgjald til þeirra yrði
594 milljónir króna með fyrirvara um áreiðanleikakönnun. 

Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir: „Stjórn Sparisjóðs Norðurlands
ses. óskaði eftir afstöðu Landsbankans til samruna félaganna í ljósi þess að
sjóðurinn hefur ekki uppfyllt kröfur eftirlitsaðila um eiginfjárhlutfall. Að
fengu samþykki eftirlitsaðila teljum við að samruni fyrirtækjanna geti gengið
greiðlega fyrir sig og að Landsbankinn geti haldið úti öflugri þjónustu á svæði
Sparisjóðs Norðurlands.“ 



Nánari upplýsingar:

Kristján Kristjánsson, pr@landsbankinn.is 410 4011 eða 899 9352.