|
|||
![]() |
|||
2016-06-16 17:19:51 CEST 2016-06-16 17:19:51 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirBreyting á reglum Seðlabanka Íslands nr. 490/2016Til upplýsinga voru birtar í dag á vef Stjórnartíðinda reglur um breytingu á reglum Seðlabanka Íslands nr. 490/2016 um bindingu reiðufjár vegna nýs innstreymis erlends gjaldeyris. Með reglunum voru gerðar breytingar á 2. og 5. tölul. 2. gr. og 6. gr. reglnanna. Í fyrsta lagi er nú kveðið á um að bindingarskylda vegna innstæðna skv. 2. og 5. tölul. 2. gr. reglnanna myndist eingöngu þegar innstreymi nýs erlends gjaldeyris er ráðstafað í innstæður í innlendum gjaldeyri þar sem ársvextir eru 3,00% eða hærri. Í öðru lagi er nú kveðið á um það í 4. mgr. 6. gr. reglnanna að bindingarfjárhæð verði laus til ráðstöfunar af bindingarreikningi að loknum bindingartíma og ráðstöfun hennar sé óháð bindingarskyldu. Hjálagt er afrit af reglunum. Reglurnar má sömuleiðis finna á vefsíðu Stjórnartíðinda, sbr. eftirfarandi vefslóð: http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=97fc97d5-8b5f-4d20-acdf-eb54f ce396aa Öllum spurningum og athugasemdum í tengslum við framangreindar breytingar má beina á netfangið hb24@sedlabanki.is. |
|||
|