2015-12-02 23:39:08 CET

2015-12-02 23:39:08 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

OR hækkar í lánshæfismati Moody‘s


Reykjavík, 2015-12-02 23:38 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Árangur í rekstri, bætt
sjóðstaða, öflug fjárstýring og efldar áhættuvarnir eru á meðal þess sem
matsfyrirtækið Moody‘s tiltekur sem ástæður þess að það hefur hækkað
lánshæfismatseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í Ba3 með stöðugum horfum. 

Í upphafi viðhengdrar tilkynningar Moody‘s (einungis gefin út á ensku) segir um
ástæður hærri einkunnar OR: 

Hækkuð lánshæfiseinkunn í Ba3 endurspeglar þann árangur sem fyrirtækið hefur
náð í bættri rekstrarafkomu, styrkari lausafjárstöðu og minni fjárhagslegri
áhættu um leið og efnahagshorfur og markaðshorfur á Íslandi hafa batnað. Hún
tekur einnig mið af því að Moody‘s væntir þess að traustari fjárhagsstaða OR
standist hugsanleg neikvæð áhrif vegna álverðs, gengis eða vaxta. 

Fjárhagsstaða OR hefur styrkst vegna árangursins af framfylgd þeirrar fimm ára
áætlunar, sem stjórn fyrirtækisins samþykkti í mars 2011. Afraksturinn hefur
verið umfram markmið í nánast öllum þáttum, þar á meðal auknum tekjum, lækkuðum
rekstrarkostnaði og frestun tiltekinna fjárfestinga. Að öllu samanteknu, er
árangur OR nú þegar umfram markmið Plansins meira en ári áður en þeim átti að
vera náð, í desember 2016. 


         Nánari upplýsingar:
         Ingvar Stefánsson
         fjármálastjóri OR
         516 6100