2016-04-21 19:08:28 CEST

2016-04-21 19:08:28 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Fitch Ratings staðfestir óbreytt lánshæfismat Íslandsbanka BBB-/F3


Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest óbreytt lánshæfismat
fyrir Íslandsbanka. Bankinn er metinn í fjárfestingarflokki með einkunnina BBB-
/F3 með stöðugum horfum.

Fitch segir að mikið hafi áunnist í rekstri bankans síðasta árið og
rekstrarumhverfi batnað töluvert. Bankinn starfi þó í litlu hagkerfi sem sé enn
undir gjaldeyrishöftum  Fram kemur í rökstuðningi Fitch að eiginfjár- og
lausafjárhlutföll séu sterk og að vanskilahlutfallið hafi lækkað milli ára.

Endurskipulagningu á lánasafni sé nú lokið, ennfremur að hverfandi hluti
endurskipulagðra lána hafi aftur farið í vanskil. Vanskilahlutfall Íslandsbanka
við árslok var 2,2% samanborið við 3,5% árið á undan. Þessi árangur setur
bankann í flokk þeirra 25% evrópskra banka sem hafa hvað lægst vanskilahlutföll.

Ennfremur tiltaka þeir að lausafjárhlutföll og vogunarhlutfall séu vel í
samanburði við sambærilegar erlendar fjármálastofnanir og bankinn sé vel í
undirbúinn fyrir losun fjármagnshafta sem stefnt er að á næstu misserum.

Aukin áhættusækni í útlánum hér og erlendis, tilslakanir í  lausafjárstýringu
bankans og alvarleg áföll í rekstrarumhverfi hans sem gætu haft áhrif á gæði
lánasafns gætu eins verið til lækkunar á lánshæfismati bankans.

Það sem gæti komið til hækkunar á lánshæfismati bankans væri áframhaldandi ábyrg
stefna í útlánum, batnandi gæði lánasafns og nægt laust fé. Eins að mál tengd
gjaldeyrishengju og afléttingu hafta verði leyst farsællega og stöðugleiki verði
í rekstrarumhverfi bankans í framhaldi af því.



Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.



[HUG#2005767]