|
|||
2009-08-21 16:55:29 CEST 2009-08-21 16:56:30 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstöður í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722, RIKB 13 0517 og RIKB 25 0612Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722, RIKB 13 0517 og RIKB 25 0612 fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 11 0722: Alls bárust 27 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 15.830 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.020 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,83 (7,50% ávöxtunarkröfu). RIKB 13 0517: Alls bárust 22 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.125 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.792 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 97,15 (8,15% ávöxtunarkröfu). RIKB 25 0612: Alls bárust 33 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 11.046 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 8.688 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 94,25 (8,68% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25. ágúst. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 26. ágúst 2009. Ríkissjóður hefur þar með gefið út ríkisbréf fyrir 145 ma.kr. á yfirstandandi ári og hefur því náð þeim markmiðum sem sett voru fram í ársáætlun í lánamálum ríkissjóðs 2009. |
|||
|