2013-10-11 18:01:00 CEST

2013-10-11 18:01:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 4.september sl. varðandi
gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 15.október nk.  kom fram í
útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í
tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags
11.október. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra
skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er
111,547832 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum
(e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  18. Október 2013 (ávöxtunarkrafa
2,79%).1 

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).





1Hreint verð (e. clean price) er 103,1.