2010-03-31 17:37:32 CEST

2010-03-31 17:38:31 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð á nýjum flokki verðtryggðra Ríkisbréfa RIKS 21 0414


Föstudaginn 9. apríl, kl. 14:00, fer fram útboð á verðtryggðum ríkisbréfum með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Um er að ræða nýjan flokk, RIKS 21 0414, sem ber árlega vexti, sem greiðast 14
apríl ár hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 14. apríl 2021. Ákvörðun um árlega
raunvexti ákvarðast í kjölfar útboðs. 

Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en
þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein
milljón króna. Rétt er að benda á að hér er ekki um verðuppboð að ræða eins og
verið hefur í fyrri útboðum heldur skal senda inn tilboð í formi ávöxtunarkröfu
með tveimur aukastöfum. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sömu ávöxtunarkröfu. Hæsta samþykkta krafan ræður söluverðinu. Að öðru leyti er
vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 14. apríl 2010.

Eftir að niðurstöður útboðs flokksins liggja fyrir mun Seðlabankinn f.h.
ríkissjóðs bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða þar til kl. 14:00
þriðjudaginn 13. apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu
útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur
fyrir þessi viðskipti er 14. apríl 2010. 

Niðurstaða útboðs verður birt fyrir opnun næsta viðskiptadags.

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða-
og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.