|
|||
2010-08-31 16:01:54 CEST 2010-08-31 16:02:53 CEST REGULATED INFORMATION HS Orka hf - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur HS Orku hf. 1. janúar til 30. júní 2010Árshlutareikningur HS Orku hf var samþykktur af stjórn félagsins á stjórnarfundi félagsins sem haldinn var í síðdegis. Tap félagsins nam 2,4 milljörðum samanborið við hagnað að upphæð 184 milljónum fyrir sama tímabil 2009. Þegar tekið hefur verið tillit til tekna og gjalda færðra á eigið fé er afkoman í heild neikvæð um 2,5 milljarða samanborið við hagnað að upphæð 612 milljónir fyrir sama tímabil 2009. Lækkun milli tímabila stafar í meginatriðum af lækkun á álafleiðum (framtíðarvirði raforkusölusamninga) að fjárhæð 4,1 milljarði en hækkun var að upphæð 814 milljónum fyrir sama tímabil 2009 og breytingum á þýðingarmun dótturfélaga en nú er um gjaldfærslu að upphæð 68 milljónum en var um tekjufærslu að upphæð 428 milljónum fyrir sama tímabil 2009. Á móti þessum lækkunum kemur gengishagnaður að upphæð 597 milljónum en gengistap var að upphæð 947 milljónum fyrir sama tímabil 2009. Samkvæmt árshlutareikningi námu heildartekjur HS Orku hf á tímabilinu tæpum 3,5 milljörðum samanborið við 2,9 milljarða fyrir sama tímabil í fyrra. Þessa tekjuaukningu má í meginatriðum rekja til hærra meðalálverðs samanborið við sama tímabil frá 2009. “Þrátt fyrir áframhaldandi erfiða stöðu íslensks efnahagalífs hefur HS Orku hf tekist að halda sterkum rekstri en hagnaður fyrir fjármagnsliði er 950 milljónir á móti 556 milljónum fyrir sama tímabil 2009,” segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf. “Meginástæðan tapsins er lækkun á álafleiðu að upphæð 4,1 milljarði en sterkara gengi íslensku krónunnar heldur þar lítillega á móti og er mikilvægt að sú þróun haldi áfram”. Framleiðslu- og sölukostnaður nam 2,4 milljörðum samanborið við 2,1 milljarð fyrir sama tímabil 2009. Aukning skapast vegna aukins kostnaðar við framleiðslu og sölu orkunnar. Önnur rekstrargjöld námu 233 milljónum samanborið við 187 milljónir fyrir sama tímabil 2009. Aukning annarra rekstrargjalda stafar aðallega af sérstakri afskrift rekstrareigna að upphæð 73 milljónir. Árshlutauppgjör og fréttatilkynning er í viðhengi. |
|||
|