2008-05-16 11:30:29 CEST

2008-05-16 11:31:28 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Exista hf. - Fyrirtækjafréttir

Exista áfram með 19,98% í Sampo eftir niðurfellingu hlutafjár


Sampo Oyj sendi í dag flöggunartilkynningu til kauphallarinnar í Helsinki þess
efnis að Exista hf. fari áfram með A-hluti í Sampo sem nemur 19,98% af
heildarhlutafé í félaginu að teknu tilliti til samþykktrar niðurfellingar á
hlutum í Sampo. Þetta er í samræmi við umfjöllun um hugsanlega niðurfellingu á
hlutum í Sampo í tilkynningu Exista um afkomu fyrsta ársfjórðungs 2008 frá 29.
apríl sl. 

Fram kom í tilkynningu frá Sampo þann 7. maí síðastliðinn að stjórn félagsins
hefði samþykkt að fella niður eigin hluti í A flokki um 6.715.000 hluti og auka
þannig hlutfallslega eign núverandi hluthafa. Exista hefur heimild finnska
tryggingaeftirlitsins til þess að fara með allt að 20% hlutafjár í Sampo.
Exista hefur því selt 1.350.000 hluti og lokað afleiðusamningi í þeim
tilgangi að halda hlutfallslegri eign félagsins í Sampo í 19,98% af
heildarhlutafé eins og fyrir niðurfellingu hlutafjár. 

Sampo Oyj á og stýrir vátryggingafélaginu If, sem er leiðandi
skaðatryggingafélag á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum, og Sampo Life, sem
starfar á sviði líftrygginga og lífeyrissparnaðar, einkum í Finnlandi og
Eystrasaltsríkjunum. Árlegar iðgjaldatekjur félagsins nema um 4,5 milljörðum
evra (540 milljörðum króna). Sampo er jafnframt umsvifamikill fjárfestir á
norrænum mörkuðum og er félagið skráð á Nasdaq OMX Nordic Exchange í Helsinki. 



Frekari upplýsingar um reikninga félagsins veitir:
Samskiptasvið Exista 
Sigurður Nordal
framkvæmdastjóri 
sími: 550 8620 (ir@exista.com)

Um Exista
Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu,
meðal annars undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar. Exista er jafnframt
alþjóðlegur fjárfestir og meðal annars kjölfestueigandi í Sampo Group,
Kaupþingi banka, Bakkavör Group, Storebrand og Skiptum. Markmið Exista er að
nýta fjárhagslegan styrk sinn til uppbyggingar á starfsemi sinni hér á landi og
erlendis. Upplýsingar um Exista hf. er að finna á vefsíðu félagsins,
www.exista.com