2008-10-07 07:48:36 CEST

2008-10-07 07:49:34 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Exista hf. - Fyrirtækjafréttir

Útboð á hlutum í Sampo


Útboð á hlutum í Sampo

Stjórn Exista hf. ákvað á fundi sínum í gærkvöldi, 6. október,  að fela
Citigroup Global Markets Limited („Citigroup“) og Morgan Stanley & Co.
International plc. („Morgan Stanley“ ) umsjón með flýtiútboði með
áskriftarfyrirkomulagi (e. accelerated bookbuilt offering) á 114.257.867 hlutum
Exista í Sampo Oyj í Finnlandi, eða sem nemur 19,98% af heildarhlutafé Sampo.
Citigoup og Morgan Stanley fara sameiginlega með umsjón útboðsins. 

Tekið er við áskriftum fyrir hlutum nú þegar. Stefnt er að því að tilkynna um
verð og úthlutun eins fljótt og unnt er að áskriftum loknum en umsjónaraðilar
munu taka ákvörðun um hvenær lokað verður fyrir ákriftir. 

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista:
„Í ljósi viðvarandi samdráttar á alþjóðlegum fjármálamörkuðum er skynsamlegt að
minnka eignarstöður og draga úr skuldsetningu. Við höfum því ákveðið að bjóða
hlut okkar í Sampo til sölu með áskriftarfyrirkomulagi og draga þannig verulega
úr skuldbindingum Exista. Ekki eru fyrirhugaðar sölur á öðrum eignum.“ 


Nánari upplýsingar veitir:
Samskiptasvið Exista
Sigurður Nordal
Framkvæmdarstjóri
sími: 550 8620
ir@exista.com