|
|||
![]() |
|||
2016-11-16 17:11:01 CET 2016-11-16 17:11:01 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Landsbankinn gefur út skuldabréf í sænskum krónumLandsbankinn hefur í dag lokið við skuldabréfaútgáfu í sænskum krónum. Samtals voru gefin út skuldabréf fyrir 1 milljarð sænskra króna (SEK), til fjögurra ára. Skuldabréfin eru útgefin í tveimur flokkum, annarsvegar SEK 750 milljónir á 1.375% föstum vöxtum og hins vegar SEK 250 milljónir á breytilegum vöxtum sem bera 1,5% vaxtaálag ofan á millibanka vexti í sænskum krónum. Skuldabréfin voru seld til fjárfesta í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Umsjónaraðili útgáfunnar var DNB Markets. Bréfin eru gefin út undir EMTN skuldabréfaútgáfuramma Landsbankans og verða þau skráð í Kauphöllinni á Írlandi. Nánari upplýsingar veitir: Hanna Kristín Thoroddsen, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7328 [] |
|||
|