|
|||
2015-09-09 16:53:13 CEST 2015-09-09 16:54:14 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLandsvirkjun semur um veltilán í íslenskum krónumLandsvirkjun skrifaði í dag undir sambankalán í íslenskum krónum til sjö ára að fjárhæð 12 milljarðar króna (jafnvirði um 93 milljóna USD). Lánið er veltilán og getur fyrirtækið dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum. Með lántökunni endurfjármagnar Landsvirkjun eldra sambankalán frá árinu 2011. Íslandsbanki, ásamt Arion banka og Landsbankanum veita lánið sem samanstendur af jöfnum hlut frá bönkunum þremur, 4 milljarðar hver hlutur. Íslandsbanki sá um skjalagerð og umsýslu við lánveitinguna fyrir hönd Landsvirkjunar. Markmið lántökunnar er að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan og greiðan aðgang að fjármögnun í íslenskum krónum. Reykjavík, 9. september 2015 Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9000, netfang: rafnar@lv.is |
|||
|