|
|||
![]() |
|||
2016-05-06 10:36:31 CEST 2016-05-06 10:36:31 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk á miðvikudag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 240 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,28%. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 800 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,20%. Óverðtryggði flokkurinn ARION CB 22 var stækkaður um 700 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,60%. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.960 m. kr. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem teknir hafa verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 1. júní næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 14.120 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 51.280 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|