|
|||
![]() |
|||
2010-03-11 10:12:11 CET 2010-03-11 10:13:11 CET REGULATED INFORMATION Skipti hf. - FyrirtækjafréttirSkipti ræðir við lánveitendur um hraðari endurgreiðslur lána og endurskoðun skilmálaSkipti hf. eiga í viðræðum við lánardrottna félagsins sem miða að því að Skipti greiði lán félagsins hraðar upp en gert er ráð fyrir í lánasamningum. Lausafjárstaða Skipta er mjög sterk, um áramótin átti félagið yfir 20 milljarða króna í handbæru fé. Skuldir félagsins hafa hins vegar hækkað með falli íslensku krónunnar þar sem hluti skulda félagsins er í erlendri mynt. Skipti hafði gert gjaldmiðlaskiptasamninga við íslenska banka til að verja félagið gegn falli krónunnar en þeir samningar hafa ekki verið uppfylltir af hálfu bankanna. Við hækkun skulda var það mat lánveitenda að skilmálar sem eru í lánasamningum hefðu raskast og óskuðu lánveitendur í kjölfarið eftir því að Skipti greiddi lánin hraðar niður með handbæru fé félagsins. Það skal áréttað að öll lán Skipta eru í skilum. Stefnt er að því að niðurstaða fáist í viðræðurnar á næstu vikum. |
|||
|