|
|||
2009-06-24 17:30:23 CEST 2009-06-24 17:31:22 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSala ríkissjóðs á íbúðabréfum og áður útgefnum ríkisbréfumÍ kjölfar falls bankanna eignaðist ríkissjóður ríkistryggð bréf sem lögð voru fram til tryggingar verðbréfalánum sem ríkissjóður yfirtók. Um er að ræða eftirfarandi flokka að nafnverði: Flokkar í ma.kr. Nafnverð HFF150914 2,2 HFF150224 5,9 HFF150434 7,5 HFF150644 5,3 RIKB 13 0517 3,8 RIKB 19 0226 3,2 Samtals 27,9 Ákveðið hefur verið að selja þessi bréf á næstunni og verður andvirðinu varið til að bæta enn frekar sjóðsstöðu ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands. Fyrirhugað er að selja bréfin í nokkrum skömmtum þannig að áhrif á verðlagningu bréfanna á eftirmarkaði verði sem minnst. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamál ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|