|
|||
2014-01-13 12:45:00 CET 2014-01-13 12:45:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0415 og RIKV 14 0715Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0415 og RIKV 14 0715 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 14 0415: Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.650 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.200 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,012 (flatir vextir 3,99%). RIKV 14 0715: Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.250 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 4.230 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,980 (flatir vextir 4,10%). |
|||
|