2019-10-16 10:01:00 CEST

2019-10-16 10:01:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki semur um viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf


Íslandsbanki hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Kviku hf. og Landsbankann um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Íslandsbanka og skráð á Nasdaq Iceland.

Tilgangur þessa samnings er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn tekur til, auka seljanleika þeirra á eftirmarkaði og stuðla að eðlilegri verðmyndun.

Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka en markflokka er 20 m.kr. Lágmarksfjárhæð tilboða í markflokka miðast við stærð flokkanna og er sem hér segir:

Size of series (ISK bn)Order size (ISK m)
0 – 30
3 – 520
5 – 1060
10 +80

Markflokkar eru ISLA CB 21, ISLA CB 23, ISLA CBI 26, ISLA CBI 28 and ISLA CBI 30.

Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind "AUTO") með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu:

Eftirstandandi líftími bréfsHámarksverðbil
0 - 6 mánuðirEnginn
6 mánuðir - 2 ár0,20%
2 - 4 ár0,30%
4 -6 ár0,35%
6 - 9 ár0,60%
9 -12 ár0,70%
12 - 18 ár1,00%
18 ár eða lengra1,15%

Verðtryggðir flokkar sem eru ótækir til frekari útgáfu vegna reglna Seðlabanka Íslands nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, með síðari breytingum, eru undanþegnir ofangreindum kvöðum um hámarksmun kaup- og sölutilboða.

Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til. Hámarkslán til einstakra viðskiptavaka er 320 m. kr. að nafnverði í hverjum markflokki en 80 m. kr. í öðrum flokkum.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - ir@islandsbanki.is.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/ 

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.230 ma. kr. og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orku. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Sjötta árið í röð mældist Íslandsbanki efstur í Íslensku ánægjuvoginni  hjá viðskiptavinum í bankaþjónustu árið 2018. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings. www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.