|
|||
2016-02-16 10:14:51 CET 2016-02-16 10:14:51 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í gær, mánudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 3.900 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.840 milljónir kr. Seldir voru víxlar til 5 mánaða að nafnverði 820 milljónir á 6,55% flötum vöxtum. Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.320 milljónir á 6,59% flötum vöxtum. Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 700 milljónir á 6,90% flötum vöxtum. Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi í lok mánaðar. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|