|
|||
2011-04-19 13:26:47 CEST 2011-04-19 13:27:48 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirSamkomulag um lífeyrissjóð StorkLífeyrissjóður Stork, Stork BV og fyrirtæki sem áður tilheyrðu Stork samsteypunni í Hollandi hafa komist að rammasamkomulagi um nýja tilhögun á rekstri lífeyrismála. Marel á aðkomu að samningnum í gegnum Stork Food Systems. Lykilatriði í rammasamkomulaginu er nýr samningur um lífeyrisskuldbindingar sem tryggir hagsmuni starfsfólks en er á sama tíma hagfelldur fyrir Marel þar sem hann eyðir áhættu félagsins af ótilgreindum lífeyrisskuldbindingum til framtíðar. Annar mikilvægur liður í samkomulaginu er fyrirhugaður flutningur á rekstri sjóðsins til Metal-Electro (PME), sem hefur umsjón með lífeyrissjóðsréttindum starfsfólks í iðngreininni almennt í Hollandi, með það að markmiði að ná fram aukinni stærðarhagkvæmni og áhættudreifingu. Samkomulag hefur náðst við fulltrúa starfsfólks fyrirtækjanna um flutninginn og hafa viðræður hafist milli PME og lífeyrissjóðs Stork. Samkomulagið á eftir að fara fyrir Seðlabanka Hollands, sem er eftirlitsaðili með þessum málaflokki, til samþykktar. Þá þarf fulltrúaráð lífeyrissjóðs Stork einnig að samþykkja samkomulagið. Áætlaður heildarkostnaður Marel vegna þessa nemur um 10 milljónum evra og er reiknað með að hann verði bókfærður sem einskiptiskostnaður á öðrum ársfjórðungi 2011, til greiðslu á fjórum árum. Theo Hoen, forstjóri Marel: “Þessi samningur er mjög jákvæður fyrir alla hluteigandi - starfsfólk, lífeyrisþega og fyrirtækin. Hann leggur traustan grunn til lengri tíma litið hvað lífeyrismálin varðar og eyðir þeirri áhættu sem hefur fylgt núverandi fyrirkomulagi vegna ótilgreindra fjárskuldbindinga til framtíðar. Allir sem unnið hafa að samningsgerðinni hafa sýnt mikla einurð og ábyrgð og afraksturinn er niðurstaða sem er hagstæð fyrir alla aðila.“ Samningurinn verður kynntur í Hollandi í dag (sjá fréttatilkynningu í viðhengi frá lífeyrissjóði Stork). Frekari upplýsingar veitir: Jón Ingi Herbertsson, fjárfesta- og almannatengsl. Sími: 563-8451; jon.herbertsson@marel.com. |
|||
|