|
|||
2017-11-21 20:51:20 CET 2017-11-21 20:52:21 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Eimskipafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarTilkynning frá YucaipaEimskipafélag Íslands hf. hefur móttekið tilkynningu frá Yucaipa Companies, eiganda 25,3% hlutafjár í félaginu, sem óskað er eftir að birtist á Nasdaq Iceland. Tilkynningin er svohljóðandi:
Árið 2009 tóku Yucaipa Companies (“Yucaipa”) þátt í farsælli fjárhagslegri endurskipulagningu Eimskipafélags Íslands og aðstoðuðu Eimskip við skráningu félagsins á hlutabréfamarkað árið 2012. Nú átta árum síðar hefur Yucaipa ákveðið að leggja mat á stöðu sína sem hluthafi í Eimskip, m.t.t. áframhaldandi eignarhalds eða mögulegrar sölu á hlut sínum í heild eða að hluta. Yucapia hefur ráðið Deutsche Bank AG og Fossa markaði hf. sem ráðgjafa. Ákvörðun um framhaldið, kann að fela í sér sölu alls hlutafjár eða hluta þess, annað hvort í útboði eða með beinum viðskiptum. Allar ákvarðanir Yucaipa um sölu verða háðar aðstæðum á fjármálamörkuðum og í efnahagsumhverfinu almennt. Allar frekar upplýsingar veita neðangreindir forsvarsmenn Deutsche Bank og Fossa markaða.
Deutsche Bank: Stephen Plauché: +1-212-250-0874 Ashish Jhajharia: +44-20-754-72488
Fossar markaðir: Haraldur Þórðarson: +354-522-4001 Steingrímur Finnsson: +354-522-4080 |
|||
|