|
||||||||||||||||||
2022-10-03 18:15:00 CEST 2022-10-03 18:15:02 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki undirritar samning um viðskiptakt á sértryggðum skuldabréfum við Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann.Arion banki hf. hefur undirritað samninga við Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum útgefnum af Arion banka á Nasdaq Iceland hf. Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningarnir taka til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð að nafnvirði skuldabréfa skal vera 80 m. kr. Skuldabréfaflokkarnir ARION CBI 29 og ARION CBI 48 eru undanskildir framangreindum skilyrðum og skal lágmarksfjárhæð tilboða í ARION CBI 29 vera 40 milljón kr. og skal lágmarksfjárhæð tilboða í ARION CBI 48 vera 20 milljón kr. Viðskiptavaka ber þó ekki að setja fram kaup- og sölutilboð í nýjan flokk skuldabréfa fyrr en flokkurinn hefur náð 3 ma kr. að stærð og skal lágmarksfjárhæð tilboða þá vera 20 m. kr. þar til flokkurinn hefur náð 5 ma kr. að stærð en þá skal lágmarksfjárhæð tilboða hækka í 60 m. kr. þar til flokkurinn hefur náð 10 ma kr. en þá skal lágmarksfjárhæð tilboða verða 80 m. kr. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu.
Undanskildir frá ákvæðum um hámarksmun milli kaup og sölutilboða sbr. ofangreinda töflu eru verðtryggðir flokkar þar sem árafjöldi til lokagjalddaga er minni en 5 ár. Flokkarnir ARION CBI 25 og ARION CBI 26 falla þar undir. Viðskiptavakar skulu eftir sem áður setja inn kaup- og sölutilboð en ekki er skilgreindur hámarksmunur milli kaup og sölutilboða. Arion banki greiðir viðskiptavökum þóknun og mun veita viðskiptavökum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka. |
||||||||||||||||||
|