|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-08-08 18:50:21 CEST 2017-08-08 18:50:21 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFlutningatölur júlí 2017Í júlí flutti Icelandair 540 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 10% fleiri en í júlí á síðasta ári. Farþegafjöldinn er sá mesti í einum mánuði frá stofnun félagsins. Sætanýtingin var 88,4% samanborið við 87,5 % í júlí í fyrra. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 12% á milli ára. Farþegar Air Iceland Connect voru tæplega 37 þúsund í júlí og fækkaði um 1% á milli ára. Framboð félagsins jókst um 2% samanborið við 2016. Sætanýting nam 69,7% og lækkaði um 1,4 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst um 15% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 41% frá því á síðasta ári, sem skýrist af aukningu í innflutningi til Íslands og flutningum um Ísland á milli Evrópu og N-Ameríku. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins fækkaði um 4% á milli ára. Herbergjanýting var 87,4% samanborið við 90,8% í júlí í fyrra.
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|