|
|||
![]() |
|||
2008-01-03 11:27:38 CET 2008-01-03 11:27:38 CET REGULATED INFORMATION Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - FyrirtækjafréttirLeiðrétting: ICEQ - Nýr samningur við Kaupþing banka um viðskiptavakt á ICEQ - Frétt send: 2008-01-03 11:11:47 CETLeiðrétting í fyrirsögn: Frétt birt undir röngu félagi. ICEQ verðbréfasjóður hefur gert samning við Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutdeildarskírteinum sjóðsins fyrir eigin reikning. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutdeildarskírteini sjóðsins í Kauphöll Íslands hf. Kaupthing banki hf. skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 75 m.kr að markaðsvirði. Kaupþing banki hf. mun leitast við að hafa mun á kauptilboði og innlausnarvirði ICEQ (ENAV15 vísitalan) eins lítinn og möguleiki og má munur á kaup- og sölutilboðum ekki vera meiri en 130% af vegnum meðalgengismun undirliggjandi félaga sem mynda OMXI-15CAP vísitöluna. Kaupþing banki hf. skuld¬bindur sig einnig til þess að endurnýja tilboð sín í ICEQ innan 3ja mínútna ef úti¬standandi tilboðum er tekið. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Kaupþing banki hf. er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 500.000.000. Ef óskað er frekari upplýsinga hafið samband við: Sigþór Jónsson, +354-444-6954 sigthor.jonsson@kaupthing.com Einar Pálmi Sigmundsson , +354-444-7331 einar.sigmundsson@kaupthing.com |
|||
|