2009-01-09 19:23:59 CET

2009-01-09 19:25:00 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landic Property hf. - Fyrirtækjafréttir

- Landic Property - tilkynning vegna skuldabréfaflokks STOD 09 0306


Í kjölfarið á miklum breytingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum er nú unnið að
því að móta nýja stefnu fyrir Landic Property. Samið hefur verið við UBS
fjárfestingabankann og Catella Corporate Finance um ráðgjöf við stefnumótunina.
Vinnan felur meðal annars í sér úttekt á rekstri og efnahag félagsins með það
að markmiði að styrkja fjárhagsstöðu þess og er unnin í nánu samstarfi við
helstu kröfuhafa félagsins. Niðurstöðu er að vænta innan fárra vikna. 

Einn liður í viðræðum um fjárhagslega endurskipulagningu eru samningar Landic
Property við eigendur skuldabréfaflokksins STOD 09 0306 sem var með
vaxtagjalddaga í desember. Farið hefur verið fram á að greiðsla vaxta frestist
til 6. mars 2009 og greiðist samhliða höfuðstól á þeim degi. Unnið er að því að
fá undirritað samþykki skuldabréfaeigenda við ofangreindum skilmálabreytingum. 

Frekari upplýsingar veitir:
Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property 
Sími: + 354 669 4444