|
|||
![]() |
|||
2015-03-06 16:53:20 CET 2015-03-06 16:54:21 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUndanþágulistum og reglum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál breyttUndanþágulistum Seðlabanka Íslands, sem birtir eru á vefsíðu bankans á grundvelli 2. og 3. gr. reglna nr. 565/2014S um gjaldeyrismál, sbr. 4. mgr. 13. gr. b laga um gjaldeyrismál, hefur verið breytt. Takmarkast undanþágulistarnir nú við ríkisvíxla og eitt ríkisskuldabréf, nánar tiltekið RIKB 15 0408. Með þessari breytingu fækkar flokkum fjármálagerninga á undanþágulista. Fjármagnshreyfingar á milli landa, vegna viðskipta með þá flokka fjármálagerninga sem tilgreindir eru á núgildandi lista, eru því enn undanþegnar takmörkunum laga um gjaldeyrismál að uppfylltum þeim skilyrðum sem nánar greinir í 2. og 3. gr. reglna um gjaldeyrismál. Seðlabankinn áskilur sér rétt til að endurskoða gildandi undanþágulista í ljósi aðstæðna hverju sinni. Samhliða breytingu á undanþágulistum Seðlabankans hefur reglum nr. 565/2014 verið breytt. Eigendum þeirra flokka skuldabréfa sem ekki njóta lengur undanþágu er heimilt að selja sína fjármálagerninga. Hins vegar verður ekki heimilt að fjárfesta í öðrum flokkum en þeim sem njóta undanþágu samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands. Krónueignir sem oft er vísað til sem aflandskróna og bundnar eru af höftum nema um þessar mundir tæplega 15% af vergri landsframleiðslu. Tilgangur með ofangreindum breytingum er að búa í haginn fyrir frekari skref að losun fjármagnshafta. Þau felast m.a. í því að eigendum þessara krónueigna verða boðnir fjárfestingakostir sem draga verulega úr líkum á óstöðugleika við losun fjármagnshafta. Tímasetning þeirra breytinga á undanþágulistum sem nú eru kynntar miðar m.a. að því að varðveita skilvirkni skuldabréfamarkaða. Reglur um breytingu á reglum nr. 565/2014 um gjaldeyrismál er að finna hér. Undanþágulista, skv. 2. og 3. gr. reglna nr. 565/2014 um gjaldeyrismál, er að finna hér. Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 5699615. |
|||
|