|
|||
![]() |
|||
2007-12-06 13:32:32 CET 2007-12-06 13:32:32 CET REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir- Fitch staðfestir lánshæfiseinkunn Kaupþings banka - horfum breytt í neikvæðarLánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að það hafi staðfest lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka, langtímaeinkunn A, skammtímaeinkunn F1, óháð einkunn B/C, stuðningseinkunn 2, stuðningseinkunnargólf BBB. Fitch hefur breytt horfum fyrir langtímaeinkunn úr stöðugum í neikvæðar. Í umsögn Fitch segir: Endurskoðun á horfum fyrir langtímaeinkunn Kaupþings kemur í kjölfar lækkunar á langtíma lánshæfiseinkunn NIBC og í ljósi þess að Fitch telur að mögulegar afkomusveiflur vegna eðlis starfsemi NIBC verði erfiðari viðureignar. NIBC mun verða stór hluti af Kaupþings samstæðunni og þar af leiðandi auka tekjusveiflur og hækka aftur hlutfall heildsölufjármögnunar hjá samstæðunni, þótt áhersla á að auka innlán gæti dregið úr áhættunni. Fitch segir einnig: Það sem engu að síður styður lánshæfiseinkunn Kaupþings er að rekstur Kaupþings fellur mjög vel að rekstri NIBC, aukin dreifing hagnaðar og eigna, góð frammistaða og vísbending um gæði eignasafns og fullnægjandi fjármagnsskipan, þrátt fyrir að umtalsverð viðskiptavild myndist við yfirtökuna. Sjá tilkynningu frá Fitch http://www.kaupthing.com/Investors/Ratings/Fitch Frekari upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson - Framkvæmdastjóri Fjárstýringar - 444-6126 Jónas Sigurgeirsson - Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs - 444-6112 |
|||
|