|
|||
2016-03-15 19:44:27 CET 2016-03-15 19:44:27 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirCORRECTION: Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiCORRECTION: Reiknuð verð í sviga í fyrri tilkynningu sem birt var kl. 18:36:49 CET voru röng en hafa verið leiðrétt í eftirfarandi tilkynningu: ---- Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 4, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 860 m.kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,3 ma. kr. Seldir voru víxlar í 4 mánaða flokkinn ISLA 16 0721 að nafnvirði 440 m.kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 97,8609). Í 5 mánaða flokkinn ISLA 16 0815 seldust að nafnvirði 120 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 97,4145) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 0915 seldust að nafnvirði 300 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,8862). Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 12,6 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. mars næstkomandi en þá eru 1,5 ma. kr. á gjalddaga í ISLA 16 0321. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1994680] |
|||
|