|
|||
![]() |
|||
2008-09-01 10:11:47 CEST 2008-09-01 10:12:47 CEST REGULATED INFORMATION Teymi hf. - FyrirtækjafréttirNiðurstöður tilboðs Teymis hf. til hluthafaSamþykkisfrestur vegna tilboðs sem Teymi hf. gerði hluthöfum félagsins um að selja hlutabréf sín í félaginu rann út klukkan 16:00 þann 29. ágúst 2008. Eigendur um 9,68 % af útgefnu hlutafé í Teymi hf. samþykktu tilboðið og munu þeir fá greitt með hlutabréfum í Alfesca hf. í samræmi við skilmála tilboðsins. Greiðsla kaupverðs mun fara fram eigi síðar en fimm viðskiptadögum eftir að gildistími tilboðsins rann út. Eigendur um 90,32 % hlutafjár í Teymi hf. samþykktu ekki tilboðið. Landsbanki Íslands hf. - Fyrirtækjaráðgjöf var ráðgjafi Teymis hf. Nánari upplýsingar veitir Dóra Sif Tynes, framkvæmdarstjóri lögfræðisviðs Teymis hf. í síma 6695512. |
|||
|