|
|||
2016-05-23 18:09:35 CEST 2016-05-23 18:09:35 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður ákveður að ganga að tilboði í Leigufélagið Klett ehf.Meirihluti stjórnar Íbúðalánasjóðs ákvað á fundi sínum í dag, mánudaginn 23. maí 2016, að taka tilboði Almenna leigufélagsins eignarhaldssjóðs, kt. 520914-9510, í Leigufélagið Klett ehf. sem átti hæsta tilboðið. Leigufélagið Klettur ehf. var formlega auglýst til sölu á almennum markaði 25. febrúar 2016. Þann 2. mars 2016 var haldinn opinn kynningarfundur þar sem félagið og söluferlið, sem var í tveimur umferðum, var kynnt. Alls bárust 8 óskuldbindandi tilboð í fyrri hluta söluferilsins. Í síðari hluta söluferilsins bárust þrjú skuldbindandi tilboð. Söluverð Leigufélagsins Kletts ehf. er 10.101 milljónir kr. sem er um 1.541 milljónum kr. umfram bókfært virði leigufélagsins hjá Íbúðalánasjóði og mun því salan hafa jákvæð áhrif á rekstur sjóðsins. Stefnt er að undirritun samninga vegna sölunnar 27. maí n.k. |
|||
|