|
|||
![]() |
|||
2016-04-18 16:18:39 CEST 2016-04-18 16:18:39 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirAf aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur 2016Reykjavík, 2016-04-18 16:17 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem haldinn var í dag tók Brynhildur Davíðsdóttir við stjórnarformennsku í fyrirtækinu. Brynhildur er prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands og hefur verið varaformaður stjórnar frá 2011. Við varaformennsku tók Gylfi Magnússon hagsfræðingur. Aðrir stjórnarmenn eru Áslaug María Friðriksdóttir borgarfulltrúi, Kjartan Magnússon borgarfulltrúi, Sigríður Rut Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður og Valdís Eyjólfsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi. Áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar er Björn Bjarki Þorsteinsson. Í tengslum við aðalfundinn var Ársskýrsla OR 2015 gefin út og Umhverfisskýrsla OR 2015. Skýrslurnar eru í viðhengi. Í samræmi við stefnumörkun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur um samfélagsábyrgð eru skýrslurnar í fyrsta sinn gerðar með hliðsjón af sjálfbærnivísum Global Reporting Initiative (GRI). Nánari upplýsingar: Bjarni Bjarnason forstjóri 516 6100 |
|||
|