2011-07-27 17:24:53 CEST

2011-07-27 17:25:56 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel hf. - Ársreikningur

Marel kynnir afkomu annars ársfjórðungs 2011


Mikill tekjuvöxtur

Tekjur annars ársfjórðungs 2011 námu 161,9 milljónum evra, sem er 19% aukning
samanborið við annan ársfjórðung 2010 [Q2 2010: 136,1 milljónir evra]. 

  -- Leiðrétt EBITDA
[1]
     var 20,9 milljónir evra, sem er 12,9% af tekjum [Q2 2010: 21,1 milljónir
     evra, leiðrétt].
  -- Leiðréttur rekstrarhagnaður (EBIT) var 15,0 milljónir evra, sem er 9,2% af
     tekjum [Q2 2010: 15,2 milljónir evra, leiðrétt].
  -- Einskiptiskostnaður að upphæð 11,1 milljónir evra, sem tengist samningi um
     nýtt fyrirkomulag lífeyrissjóðsmála hjá Stork, er innifalinn í
     samstæðureikningi fyrir annan ársfjórðung 2011.
  -- Að teknu tilliti til einskiptiskostnaðarins hér að ofan nam hagnaður 0,2
     milljónum evra á öðrum ársfjórðungi 2011 [Q2 2010: 0,1 milljónir evra].
  -- Sjóðstreymi er traust og nettó vaxtaberandi skuldir námu 248,8 milljónum
     evra í lok annars ársfjórðungs 2011 [Q2 2010: 284,1 milljónir evra].
  -- Pantanabók heldur áfram að styrkjast í takt við stöðugt framboð nýrra vara
     og hagstæðar markaðsaðstæður. Fyrirliggjandi pantanir námu 176,3 milljónum
     evra í lok annars ársfjórðungs 2011 [Q2 2010: 125,3 milljónir evra].



Annar ársfjórðungur 2011 var góður hjá Marel. Tekjur námu 162 milljónum evra,
sem er 19% aukning samanborið við sama tímabil fyrir ári og 5% samanborið við
fyrri ársfjórðung. Rekstrarhagnaður var 9,2% af veltu á ársfjórðungnum og 10,2%
á fyrri hluta árs sem er í samræmi við markmið fyrirtækisins um rekstrarhagnað
upp á 10-12% af veltu á árinu. Horfur út árið eru jákvæðar. 

Virði nýrra pantana var enn á ný umfram afgreiddar pantanir. Fyrir vikið hélt
pantanabókin áfram að styrkjast og nam hún 176 milljónum evra í lok annars
ársfjórðungs, samanborið við 169 milljónir evra í lok ársfjórðungsins á undan
og 125 milljónir evra á sama tíma fyrir ári. 



Tekjur námu 315 milljónum evra á fyrri hluta árs með 10,2% EBIT framlegð

  -- Tekjur námu 315,4 milljónum evra á fyrri hluta árs 2011, sem er 19% aukning
     samanborið við sama tímabil fyrir ári [1H 2010: 264,9 milljónir evra af
     kjarnastarfsemi].
  -- Leiðréttur rekstrarhagnaður (EBIT) nam 32,1 milljón evra á fyrri hluta árs,
     sem er 10,2% af tekjum [1H 2010: 30,3 milljónir evra af kjarnastarfsemi,
     leiðrétt].
  -- Hagnaður nam 9,0 milljónum evra á fyrri hluta árs [1H 2010: 5,7 milljónir
     evra].



Theo Hoen, forstjóri:

„Við erum ánægð með þann viðvarandi vöxt sem við sjáum í starfsemi
fyrirtækisins. Pantanastaðan styrkist og verkefnastaðan hefur aldrei verið
betri. Það endurspeglar þær jákvæðu viðtökur sem nýjustu vörur okkar hafa
fengið á mörkuðum. RevoPortioner, SensorX, StreamLine og MOS ofnakerfin okkar
seljast mjög vel og QX pylsugerðarkerfin eru einnig að ná flugi. Við sjáum
góðan vöxt í löndum eins og Úkraínu, Suður-Kóreu, Brasilíu og Kína, sem vegur
upp á móti stöðunni í Bandaríkjunum þar sem ekki er um vöxt að ræða. 



Til að styðja við frekari vöxt erum við í auknum mæli að sækja á nýja markaði
og fjárfesta í aukinni framleiðslugetu. Við erum t.d. að fjölga starfsfólki í
framleiðslu um um það bil 300 á árinu. Þetta setur tímabundinn þrýsting á
framlegð. Engu að síður er hlutfall rekstrarhagnaðar af tekjum á fyrri hluta
árs í samræmi við markmið okkar um 10-12%. Horfur út árið eru jákvæðar.“ 



Virði fyrirliggjandi pantana aldrei meira

Marel nýtur áfram góðs af sterkri markaðsstöðu og stöðugu framboði nýrra vara.
Nýjar pantanir, að meðtöldum þjónustutekjum, námu 168,8 milljónum evra á öðrum
ársfjórðungi 2011, samanborið við 149,4 milljónir á sama tímabili fyrir ári.
Sem fyrr var virði nýrra pantana umfram afgreiddar pantanir og heldur
verkefnastaðan þar af leiðandi áfram að styrkjast og hefur aldrei verið betri.
Virði pantana nam 176,3 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs 2011
samanborið við 125,3 milljónir evra á sama tíma fyrir ári. 

Handbært fé frá rekstri er áfram traust og nemur 7,4 milljón evra á öðrum
ársfjórðungi, fyrir fjármagnsliði og skatta. Efnahagsreikningurinn er sterkur
og eru nettó skuldir félagsins nú 248,8 milljónir evra samanborið við 284,1
milljónir í lok annars ársfjórðungs 2010. 



Horfur

Markaðsaðstæður hafa áfram batnað. Marel hefur styrkt markaðsstöðu sína enn
frekar og sterk pantanabók gefur góð fyrirheit um framhaldið á komandi mánuðum.
Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga
vegna sveiflna í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna. 



Kynningarfundur 28. júlí 2011

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 28. júlí kl.
8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabær. Fundinum verður einnig
netvarpað: www.marel.com/webcast 



Birtingardagar fyrir reikningsárið 2011 og aðalfundur 2012

  -- 3. ársfjórðungur 2011                                                      
     26. október 2011
  -- 4. ársfjórðungur 2011                                                      
     1. febrúar 2012
  -- Aðalfundur Marel hf.                                                       
     29. febrúar 2012



Frekari upplýsingar veita:

Jón Ingi Herbertsson, fjárfesta- og almannatengsl. Sími: 563-8451

Erik Kaman, fjármálastjóri. Sími: 563-8072

Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel ehf. Sími: 563-8072





Um Marel                                                                        
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á     
 heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á    
 fiski, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki
 í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.                  
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:                                      
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og  
 áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna   
 við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við
 vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif 
 að rekstraumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir 
 í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað
 þetta varðar.                                                                  






[1]Einskiptiskostnaður tengdur samningi um nýtt fyrirkomulag lífeyrissjóðsmála
hjá Stork er að fullu talinn með í heildarafkomutölum annars ársfjórðungs 2011
en er ekki talinn með í leiðréttum tölum til að auðvelda samanburð við
leiðrétta afkomu árið 2010. (Nánað er fjallað um samninginn um lífeyrissjóð
Stork í kaflanum „Helstu atburðir á tímabilinu“.)