2010-06-01 17:34:00 CEST

2010-06-01 17:34:59 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612


Föstudaginn 4. júní kl. 11:00 fer fram útboð með tilboðsfyrirkomulagi hjá
lánamálum ríkisins. 

Í þessu útboði verða seld bréf í RIKB 11 0722 OG RIKB 25 0612.  Heildarfjárhæð
samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 9. júní 2010.

Í þessu útboði óskar Lánamál ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka
ríkisverðbréfa: 
Flokkur	    Lokagjalddagi     Útistandandi fjárhæð*  Lánstími
RIKB 11 0722	22.07.2011	50.706m.kr.	   1,1 ár
RIKB 25 0612	12.6.2025	77.838m.kr.	   15,0 ár
*að nafnverði

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 8.
júní 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 9. júní 2010. 


Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.